Item request has been placed! ×
Item request cannot be made. ×
loading  Processing Request

Reynsla og upplifun þroskaþjálfa í grunnskóla af áhrifum COVID-19 faraldursins á þjónustu við nemendur ; Social educators’ experiences of the impact of the COVID-19 pandemic on services provided to students in compulsory schools

Item request has been placed! ×
Item request cannot be made. ×
loading   Processing Request
  • معلومة اضافية
    • Contributors:
      Deild menntunar og margbreytileika
    • الموضوع:
      2020
    • Collection:
      Opin vísindi (Iceland)
    • نبذة مختصرة :
      Ísland fór ekki varhluta af heimsfaraldri COVID-19 og um miðjan mars 2020 var í fyrsta skipti í sögu lýðveldisins sett á samkomubann sem náði einnig til grunn-, framhalds- og háskóla. Það hafði í för með sér að stór hluti kennslu varð rafrænn og nemendur, foreldrar og kennarar þurftu að aðlagast breyttum aðstæðum þegar kom að samskiptum og félagstengslum. Í þessari grein verður sjónum beint sérstaklega að upplifun þroskaþjálfa á þjónustu við nemendur sem þurfa margvíslegan stuðning í námi og félagslegum samskiptum. Könnunin er hluti af stærri rannsókn fræðafólks frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands á áhrifum COVID-19 faraldursins á skóla- og frístundastarf. Um er að ræða spurningakönnun þar sem bæði voru opnar og lokaðar spurningar. Meginrannsóknarspurningin var: Hver er reynsla þroskaþjálfa í grunnskóla af áhrifum faraldursins á þjónustu við nemendur? Tilgangur könnunarinnar var að skoða reynslu þroskaþjálfa í grunnskóla af áhrifum faraldursins á þjónustu við nemendur og upplifun þeirra á faglegri ábyrgð sinni í skertu skóla- og frístundastarfi. Markmið hennar er að varpa ljósi á þjónustu og stuðning við nemendur og bera kennsl á leiðir og lausnir sem hafa reynst vel og munu jafnvel stuðla að bættri þjónustu við öll börn þegar faraldurinn er afstaðinn. Niðurstöður gefa til kynna að þjónusta við nemendur með margvíslegar stuðningsþarfir hafi skerst meira en hjá öðrum, meðal annars vegna þess að nám og þátttaka í gegnum fjarbúnað reyndist ekki öllum nemendum aðgengileg. Vísbendingar eru um að jaðarsetning og einangrun nemenda hafi aukist hjá þeim sem stóðu höllum fæti félagslega en að nemendur sem voru búnir að byggja upp félagslegt net fyrir COVID-19 náðu að viðhalda þeim tengslum. Niðurstöður rannsóknarinnar vekja jafnframt áríðandi spurningar um hvernig hægt sé að tryggja öllum börnum jafnrétti og aðgengi að menntun og félagslegri þátttöku í áframhaldandi heimsfaraldri. ; At the end of February 2020, the COVID-19 pandemic reached Icelandic shores and had severe consequences for society and daily life, as all ...
    • ISSN:
      1670-0244
    • Relation:
      Netla; 2020(); Rauterberg , R J & Sverrisdóttir , A B 2020 , ' Reynsla og upplifun þroskaþjálfa í grunnskóla af áhrifum COVID-19 faraldursins á þjónustu við nemendur ' , Netla , bind. 2020 . https://doi.org/10.24270/serritnetla.2020.22; 1ef93125-90cb-44fd-a4af-dc67e6e57c60; ORCID: /0000-0002-7813-7088/work/88995088; https://hdl.handle.net/20.500.11815/3325
    • الرقم المعرف:
      10.24270/serritnetla.2020.22
    • Rights:
      info:eu-repo/semantics/openAccess
    • الرقم المعرف:
      edsbas.AE0CE142