Item request has been placed! ×
Item request cannot be made. ×
loading  Processing Request

Mikilvægi mittismáls við eftirlit barna með offitu. Alvarleg frávik í blóðgildum hjá íslenskum börnum með offitu ; Importance of waist circumference measurements when following children with obesity: Serious abnormalities in blood values of Iceandic children with obesity

Item request has been placed! ×
Item request cannot be made. ×
loading   Processing Request
  • معلومة اضافية
    • Contributors:
      Læknadeild Háskóla Íslands, Barnaspítala Hringsins Landspítali
    • بيانات النشر:
      Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavi­kur
    • الموضوع:
      2015
    • Collection:
      Hirsla - Landspítali University Hospital research archive
    • نبذة مختصرة :
      Efst á síðunni er hægt að nálgast greinina í heild sinni með því að smella á hlekkinn ; Inngangur: Offita barna er vaxandi heilbrigðisvandamál í heiminum. Gegnum tíðina hefur líkamsþyngdarstuðull (Body Mass Index, BMI) verið helsti mælikvarði á offitu en ágæti hans hefur verið dregið í efa hjá börnum. Heilsuskólinn var stofnaður árið 2011 þegar þverfaglegt teymi var sett saman á Barnaspítala Hringsins til að aðstoða börn og fjölskyldur þeirra við að bæta lífsvenjur sínar. Markmið rannsóknarinnar var að finna þann mælikvarða á offitu barna sem hafði mest forspárgildi um frávik í blóðgildum auk þess að fá heildstæða mynd af frávikum í efnaskiptum barna með offitu í Heilsuskólanum. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var afturskyggn, lýsandi og náði til allra barna sem leitað höfðu til Heilsuskóla Barnaspítalans á tímabilinu 1. janúar 2011 til 15. mars 2013 (n=181). Upplýsingatæknisvið Landspítalans tók saman upplýsingar um hæð, þyngd, BMI, mittismál og niðurstöður blóðrannsókna. Niðurstöður: Frávik í einu eða fleiri blóðgildum fundust hjá 54 börnum (47%). Af þeim börnum sem upplýsingar voru til staðar um höfðu fjögur (4%) staðfesta fitulifur og 28 (28%) höfðu insúlínhækkun, þar af átta (8%) að því marki að þörf væri á inngripi (hyperinsulinemia). Eitt barn hafði bæði fitulifur og marktæka insúlínhækkun. Ályktun: Frávik í blóðgildum barna með offitu eru algeng. Mittismál virðist hafa meira forspárgildi um frávik í efnaskiptum tengdum offitu en BMI-SDS. Mittismál mætti nota til að skima fyrir þeim börnum sem þurfa á reglulegu eftirliti að halda með tilliti til frávika í efnaskiptum. Mittismál bætir mikilvægum upplýsingum við í áhættumati á börnum með offitu. Rannsóknin sýnir því mikilvægi þess að heilbrigðisstarfsfólk mæli mittismál barna sem þeir hafa til meðferðar og eftirlits. ; Introduction:Childhood obesity is a growing health problem worldwide. Body mass index (BMI) has been used as the main measurement of obesity for years but its quality for children has been questioned. In 2011 the Health School was formed at ...
    • ISSN:
      0023-7213
    • Relation:
      http://www.laeknabladid.is; Læknablaðið 2015, 101(9): 399-403; http://hdl.handle.net/2336/576930; Læknablaðið
    • الدخول الالكتروني :
      http://hdl.handle.net/2336/576930
    • Rights:
      Open Access
    • الرقم المعرف:
      edsbas.6E0C7310