نبذة مختصرة : To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Download ; Tilgangur: Íbúar á íslenskum hjúkrunarheimilum eiga við margvísleg andleg og líkamleg vandamál að stríða, m.a. þunglyndi og hegðunarvanda. rannsóknir hafa sýnt að um helmingur íbúa eyðir litlum eða engum tíma í virkni og að stjórnendur hjúkrunarheimila eru meðvitaðir um mikilvægi þess að örva virkni íbúa en úrræði og þekking eru ekki alltaf fyrir hendi. Yfirlit yfir hvaða virkni er í boði á hjúkrunarheimilum er ekki til. Viðbótarmeðferð virðist hafa jákvæð áhrif til að draga úr vanlíðan og til að bæta líðan og ánægju íbúa á hjúkrunarheimilum. Engar upplýsingar eru til um hvaða tegundir viðbótarmeðferðar eru í boði á íslenskum hjúkrunarheimilum. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvaða virkni og viðbótarmeðferð er í boði á íslenskum hjúkrunarheimilum og hverjir skipuleggja og veita meðferð. Einnig var spurt hvort hjúkrunarheimili þurfi stuðning til að efla þessa meðferð. Aðferð: Tveir spurningalistar, annar um meðferð til að auka virkni og hinn um notkun viðbótarmeðferðar, voru samdir og sendir til allra hjúkrunarheimila á Íslandi, 59 talsins. fimmtíu og tvö hjúkrunarheimili (88%) svöruðu listanum um virkni og afþreyingu og 45 heimili (76%) svöruðu listanum um viðbótarmeðferð. Niðurstöður: niðurstöðurnar sýndu að öll hjúkrunarheimili (n=52; 100%) buðu upp á meðferð til að auka virkni og 43 hjúkrunarheimili (96%) upp á viðbótarmeðferð. Margar ólíkar starfsstéttir áttu þátt í því að skipuleggja og veita þessa meðferð, en helst eru það hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar. algengasta meðferð til að auka virkni var upplestur og að horfa saman á myndir og hlusta á tónlist. algengustu gerðir viðbótarmeðferðar voru heitir bakstrar, leikfimi og nudd. hjúkrunarstjórnendur vildu flestir fá aðstoð við að efla þessa þætti í þjónustu við íbúa, t.d. með fræðslu eða aukinni samvinnu við aðrar stofnanir. Ályktanir: Virkni og viðbótarmeðferð er ...
No Comments.