Item request has been placed! ×
Item request cannot be made. ×
loading  Processing Request

Skurðmeðferð lifrarfrumukrabbameins á Landspítala 1993-2012 ; Surgical treatment of hepatocellular carcinoma at Landspitali The National University Hospital of Iceland 1993 – 2012

Item request has been placed! ×
Item request cannot be made. ×
loading   Processing Request
  • معلومة اضافية
    • Contributors:
      1 Skurðlækningadeild Landspítala, 2 læknadeild Háskóla Íslands, 3 rannsóknarstofu í meinafræði.
    • بيانات النشر:
      Læknafélag Íslands, Læknafélag Reykjavíkur
    • الموضوع:
      2017
    • Collection:
      Hirsla - Landspítali University Hospital research archive
    • نبذة مختصرة :
      To access publisher's full text version of this article, please click on the hyperlink in Additional Links field or click on the hyperlink at the top of the page marked Files ; Inngangur: Lifrarfrumukrabbamein er meðal algengustu krabbameina í heimi. Nýgengi á Íslandi er með því lægsta sem þekkist og er helsta ástæða þess talin lág tíðni á skorpulifur. Læknandi meðferð felur í sér skurðaðgerð með lifrarígræðslu eða hlutabrottnámi á lifur, en einungis um 30% sjúklinga eru skurðtækir við greiningu. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hversu margir sjúklingar gangast undir lifrarbrottnám vegna lifrarfrumukrabbameins á Landspítala og kanna árangur skurðaðgerða. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var afturskyggn þýðisrannsókn sem náði til allra þeirra einstaklinga 18 ára og eldri sem gengust undir skurðaðgerð við lifrarfrumukrabbameini á Landspítala frá 1. janúar 1993 til 31. desember 2012. Upplýsingum var safnað úr sjúkraskrám. Notast var við lýsandi tölfræði. Niðurstöður: Á tímabilinu gengust 22 einstaklingar undir hlutabrottnám lifrar, þar af 12 (55%) í stærri lifraraðgerð. Í heildina greindust 105 einstaklingar með lifrarfrumukrabbamein, 6 fóru í lifrarígræðslu og alls gengust 28 (27%) einstaklingar undir skurðaðgerð. Meðalstærð æxla var 8,5 cm (3-22). Fjórir einstaklingar voru með skorpulifur. Tíðni alvarlegra fylgikvilla í aðgerð var 23% og eftir aðgerð 32% (Clavien-Dindo flokkar III og IV). Alls þurftu þrír enduraðgerð. Enginn sjúklingur lést innan 30 daga frá aðgerð. Tólf sjúklingar höfðu greinst með endurkomu á sjúkdómi (55%) við lok rannsóknartímabilsins og 11 létust. 23% aðgerðarsjúklinga létust innan árs frá aðgerð. Ályktun: Eins og sýnt hefur verið fram á erlendis er hlutfall skurðtækra einstaklinga með lifrarfrumukrabbamein á Íslandi lágt. Lágt hlutfall þeirra sem greinast eru með skorpulifur eða þekktan undirliggjandi lifrarsjúkdóm. Tíðni alvarlegra fylgikvilla er hærri hér en í erlendum rannsóknum, sem skýrist að öllum líkindum af því að um mun stærri æxli er að ræða, en dánartíðni er sambærileg. ...
    • ISSN:
      00237213
      16704959
    • Relation:
      http://www.laeknabladid.is/tolublod/2017/11/nr/6539; Læknablaðið 2017,103(11):475-479; http://hdl.handle.net/2336/620341; Læknablaðið
    • الرقم المعرف:
      10.17992/lbl.2017.11.158
    • الدخول الالكتروني :
      http://hdl.handle.net/2336/620341
      https://doi.org/10.17992/lbl.2017.11.158
    • Rights:
      Archived with thanks to Læknablaðið ; Open Access - Opinn aðgangur
    • الرقم المعرف:
      edsbas.30C2F295